Jæja... hér sit ég á bókasafninu... búin að vera í
skólanum frá kl 8 í morgun og var að klára núna... nema það að ég
er svo að fara á kóræfingu kl hálf fjögur...
Eftir það kemst ég
loksins heim að borða (enda er ég að detta niður úr næringarskorti
núna)
En það ætti samt að reddast.. Sólrún ætlaði að koma með
muffins sem ég á inní ískáp á æfingu
Annars myndi ég deyja á
leiðinni heim örugglega... En allavega þegar ég er búin að borða
kvöldmat hef ég svona klst til að læra og svo er æfing til kl hálf
tíu...
Annars held ég að ég byrji alltaf færslurnar
mínar á "Jæja"
Hafiði tekið eftir því ? haha... ég er að pæla í
að halda því bara áfram

*Fruuussssssssssssssss*
Ég veit sossem ekki hvað ég á að segja ykkur...
eða jú! Ég er með GEÐVEIKAR harðsperrur eftir æfinguna í gær...
enda stóðum við í Choochumsogi í örugglega svona hálftíma og gerðum
Ahnmaggi og Araemaggi aftur ... og aftur... og aftur... og aftur!!!
(EHEHEH þetta skilja ekki nema svona þrír!
)
Annars leiðist mér... mikið... samt hef ég
allt of mikið að gera... ætti í rauninni að vera að læra í
stærðfræði enda gapti ég bara í tíma í dag... og ég er að fara í
próf á fimmtudag!!! Ég bið alla vinsamlegast um að biðja til
Buddha, Lúsífers, Spongebob Squarepants eða hvað sem þið viljið um
að láta mig ná þessu helvíti...!

Æji vá ég ætla að hættu þessu rugli og drulla mér á
æfingu!!!
*Rembingskoss!*
Bæhmmm