Eins og áður kom fram skellti ég mér "heim" á Höfn í tæka tíð
fyrir humarhátíð. Hefði verið skemmtilegra hefði maður haft
einhvern til að djamma með en ég lét mér bara mömmu duga
Laugardagskvöldið var sérstaklega skrautlegt... þá fórum ég, mamma
og sveinbjörn á labbinn áður en við ætluðum á Dans á rósum ball í
víkinni. Á röltinu hittum við eiginmann hálfsystur mömmu (sem ég
ekki eftir að hafa hitt áður ... ) sem var sko veeel íði á
einhverju ættarmóti. Hann bættist við í röltið og spjölluðum við
vel saman um allt á milli himins og jarðar... komst að því að þessi
maður er SNILLINGUR!;D
Þegar við fórum loksins á Víkina (tók okkur 2 tíma) tókum ég og
mamma trylltan dans í kringum blindfulla og uppdópaða Hornfirðinga
(Djöfull eru þeir leiðinlegir fullir! Þetta er eins og að dansa í
kringum fíla!!!). Inná milli þurfti ég svo að tala við
dauðadrukkinn Jóhann Gunnarsson sem hló tryllingslega að öllu sem
ég sagði... og hann var líka búinn að snoða sig...
Þegar ballið tók að líða á seinni partinn ákváðum við að skella
okkur bara í háttinn enda báðar ágætlega léttar áðí...
Þá komumst
við að því að Sveinbjörn var horfinn... ákváðum eiginlega bara að
hann væri farinn heim og við fengum okkur take-away vatnsglas og
röltum heim... á hælum... ég allavega...
Þegar ég lá svo uppí rúmi að reyna að sofna fannst mér þetta
einstaklega spes kvöld... en skemmtilegt þó
Nú er ég bara komin á fullt aftur að vinna ... og finna meiri
vinnu... í augnablikinu er ég að vinna í bakarameistaranum í
Kópavogi og hjá Birtingi útgáfufélagi í símasölu... frá og með
morgundeginum verð ég líklegast líka að vinna á Café Victor í
miðbænum... jeij... 3 vinnur... shibbídú...
Svona að lokum við ég biðja þann sem er með Eragon bókina
mína í láni að láta mig vita! Ég er búin að gleyma hver er með
hana
----------------------------------------------------
Like the taste of the day you left
That still lingers on my breath
And the dampness of tears that left
A stain where you had wept...