Bull og vitleysa

Bull og vitleysa

28.09.2007 19:41:01 / spjelgus

Blogg?

Blogg? Það hefur týnst eitthvað í stóráætlunum mínum um heimsyfirráð....

Jæja... ég veit svosem ekkert hvað það er langt síðan ég bloggaði síðast og ég nenni ekki að gá að því.... hér er smá úrdráttur...:

• Bíllinn minn er ónýtur
• Komin úr útskriftarferð (myndir á http://helgahjarta.smugmug.com)
• Held að Romeo sé dauður (Kaktusinn minn... Hann missti hausinn um sama tíma og bíllinn minn eyðilagðist...)
• Ég og Ragna erum ennþá bara 2 að leigja risastóru íbúðina sem við erum í ...
• Það er samt risastórt baðkar í henni:D
• Busun búin, ég er víst ógeðslega illur böðull (múhaha)
• Ég keypti mér nýtt rúm á 5000
• Ég er búin að vera veik heima í 4 daga straight í augnablikinu
• Ég keypti mér gosbrunn á Rhodos
• Ég er að baka mér pítsu
• Ég á kók

Þetta er svona grófur úrdráttur úr tímanum sem leið frá síðasta bloggi... ég er stolt af mér.

Jæja.. þetta var mjög gefandi skriffinska... núna ætla ég að borða pítsu....

Spjelgusinn kveður að sinni


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 20:11:32 / spjelgus

Úff púff...

Já... eins og dyggir aðdáendur mínir hafa tekið eftir þá hefur verið löng pása á skriftum mínum... Ég vil kenna 3 aðila um það, kallaður leti. Svo er ég líka búin að vinna á fullu á Café Victor síðan síðasta færsla var skrifuð.

Ég er ennþá ekki komin með nýju tölvuna mína, en ég vona innilega að þetta verði síðasta færsla skrifuð á minn blessaða HP vítahring. Thank the Holy Spaghettimonster.

Ég skal koma með skemmtilegra blogg næst en hún Ragna klukkaði mig... ég á víst að segja 8 syndir sem ég hef gert..... þar sem ég skilgreini "synd" á mikið öðruvísi máta en margir aðrir þá veit ég ekki hvað ykkur finnst þetta meika mikið sens en whatever...

1. Ég þori ekki að ganga á eftir nánari samskiptum við þá sem ég vildi það helst.

2. Ég er ömurlegur bílstjóri... hehe

3. Ég er ekki nógu dugleg að halda uppi gömlum vinasamböndum. (Cheesies88 4TW!:D)

4. Ég rækta ekki lengur líkama og sál eins mikið og ég hefði viljað.

5. Ég er u.þ.b. 2 árum á eftir í almennum bókalestri.

6. Ég hef ekki tekið upp gítarinn minn í meira en mánuð.

7. Ég hitti mömmu mína að meðaltali svona 4-5 sinnum á ári....

8. Ég hitti pabba minn enn sjaldnar...

Þetta eru syndirnar mínar 8. Endilega kommentið...

--------------------------------------------------------

How much longer will it take to cure this?
Just to cure it cause I can't ignore it if it's love...


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 23:42:12 / spjelgus

Humarhátíð og sumarsala....

Eins og áður kom fram skellti ég mér "heim" á Höfn í tæka tíð fyrir humarhátíð. Hefði verið skemmtilegra hefði maður haft einhvern til að djamma með en ég lét mér bara mömmu duga;) Laugardagskvöldið var sérstaklega skrautlegt... þá fórum ég, mamma og sveinbjörn á labbinn áður en við ætluðum á Dans á rósum ball í víkinni. Á röltinu hittum við eiginmann hálfsystur mömmu (sem ég ekki eftir að hafa hitt áður ... ) sem var sko veeel íði á einhverju ættarmóti. Hann bættist við í röltið og spjölluðum við vel saman um allt á milli himins og jarðar... komst að því að þessi maður er SNILLINGUR!;D

Þegar við fórum loksins á Víkina (tók okkur 2 tíma) tókum ég og mamma trylltan dans í kringum blindfulla og uppdópaða Hornfirðinga (Djöfull eru þeir leiðinlegir fullir! Þetta er eins og að dansa í kringum fíla!!!). Inná milli þurfti ég svo að tala við dauðadrukkinn Jóhann Gunnarsson sem hló tryllingslega að öllu sem ég sagði... og hann var líka búinn að snoða sig...

Þegar ballið tók að líða á seinni partinn ákváðum við að skella okkur bara í háttinn enda báðar ágætlega léttar áðí...:P Þá komumst við að því að Sveinbjörn var horfinn... ákváðum eiginlega bara að hann væri farinn heim og við fengum okkur take-away vatnsglas og röltum heim... á hælum... ég allavega...

Þegar ég lá svo uppí rúmi að reyna að sofna fannst mér þetta einstaklega spes kvöld... en skemmtilegt þó;)

Nú er ég bara komin á fullt aftur að vinna ... og finna meiri vinnu... í augnablikinu er ég að vinna í bakarameistaranum í Kópavogi og hjá Birtingi útgáfufélagi í símasölu... frá og með morgundeginum verð ég líklegast líka að vinna á Café Victor í miðbænum... jeij... 3 vinnur... shibbídú...

Svona að lokum við ég biðja þann sem er með Eragon bókina mína í láni að láta mig vita! Ég er búin að gleyma hver er með hana:S

----------------------------------------------------

Like the taste of the day you left
That still lingers on my breath
And the dampness of tears that left
A stain where you had wept...


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2007 19:34:45 / spjelgus

Ich bin Helga, JAAA!

Já... ég kann ekki þýsku...

Ég er stödd í endaþarmi... eða rassgati réttara sagt... öðru nafni Höfn í Hornafirði... hahah:D

Ég ákvað að skella mér bara í gærkvöldi og var komin hingað rétt fyrir 12 í gær.. úff hvað það er langt að keyra hingað ... Um leið og ég kom lagðist ég svo í yndislega ótrúlega þægilega rúmið mitt sem er fast í endaþarmstotum og iðramjólk hérna í rassgatinu... :S:S:lol:

Ég svaf svo veeeeel út í morgun og naut þess að bræður mínir þurftu báðir að mæta í vinnu en ekki ég! Múhaha!;D Reyndar svaf Hjörtur svo yfir sig og vaknaði seinna en ég þannig að það virkaði ekki alveg sem skyldi... Núna er ég svo að fara eftir hálftíma á "Þýskt kvöld" hjá kvennakórnum hérna sem mamma er í ... mjög fyndið að sjá hana klædda sem svona þýska þjónastúlku dæmi... þið vitið öll hvað ég meina! hahahah!

Annars er ég bara á fullu að leita mér að vinnu.... maður þarf víst pening til að lifa... eða hvað? Ég vildi innilega að svo væri ekki... en svo þykist ég lifa svo hátt að kaupa mér bíl og tölvu þannig að... Ef mér á að takast að borga Ástu peninginn fyrir tölvunni sem hún er að kaupa handa mér þarna úti þá þarf ég að "take some drastic measures"... bílaþvottur anyone? HAHA:haha::haha:

------------------------------------

Wherever you are
I'm waiting
'Cause there are these nights when
I sing myself to sleep
And I'm hopin' my dreams
Bring you close to me
Are you listening?


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.06.2007 14:55:49 / spjelgus

Bömm...

Jæja já... nú get ég ekki lengur bloggað og hangið á msn á meðan ég vinn á kaffihúsi... þar sem ég vinn ekki lengur á kaffihúsi... mér var sagt upp! JEIJ! Hún réð víst of marga fyrir sumarið!

Núna er ég semsagt atvinnulaus.... eða... "in between jobs" eins og ég vil kalla þetta... haha:D

Ég er samt byrjuð að leita aftur ... helvítis vinnumarkaður...  einhverjar hugmyndir?

Annars er ég að pæla að kíkja á Höfn um helgina... jafnvel bara núna á eftir... kemur í ljós hverju ég nenni;) Það er jú humarhátíð og eitthvað ... allavega eitthvað að gera þarna ...:P Kannski ég sleppi því að keyra útaf í þetta skiptið... heh... 

--------------------------------------------------------

I step out the frontdoor like a ghost into the fog,
where noone notices the contrast of white on white.
And in between the moon and you, angels get a better view,
at the crumbeling difference between wrong and right....


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 19:36:09 / spjelgus

Símaskráin og FM957 eru nýju bestu vinir mínir...

Á mánudaginn nældi ég mér í 3 miða á Shrek the third á FM... í dag nældi ég mér í 2 miða á Die Hard... svo spilaði gaurinn símtalið okkar nokkrum mínútum seinna... hahahhahaha:D Ég hló upphátt alla leiðina heim úr vinnunni!!! hahh

Annars var ég bara að koma heim úr vinnunni og smá útréttingsrúnt fyrir Guðrúnu... hún er soddan vitleysingur... haha:D

Svo að ekki svo skemmtilegum fréttum... ég var stoppuð af löggunni í morgun ... ég var á 78 km hraða á 50 km hámarkshraða... úps... heh... þetta var samt allt Guðrúnu að kenna... hún var of sein í vinnuna og fékk mig til að skutla henni ..... heh...

JEIJ! Það er föstudagur!! Ég fattaði það allt í einu... hah... það þýðir að á morgun förum ég og Birgitta að versla:D:D  Ég ætla sko að leggja allan dreifbýlisstyrkinn inn á kortið mitt og fara með hann í kringluna! 

-----------------------------------------------

Addi: Bíddu HA?! Eru engir vöðvar í typpi!?
Sólrún: Neiii þá gæti maður tognað í því!
Addi: ÁI!!!
Helga: Þúst þetta er bara eins og svampur...
Addi: OJJ!!! Viltu vinsamlegast biðja hann fyrirgefningar!!!


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.06.2007 14:19:19 / spjelgus

Híhíhí...

Ég er í vinnunni.... hehe ... hvað eru það margir sem vinna á kaffihúsi og geta hangið á msn og bloggað í leiðinni?;) I can!;D

----------------------------------------------

You're a carousel
You're a wishing well
And you light me up
When you ring my bell
You're a mystery
You're from outer space
You're every minute of my every day


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2007 16:17:51 / spjelgus

Reykjavík watch out...

Jæja þá er maður svona næstum búinn að koma sér fyrir hérna:) Ég og Guðrún þurfum að finna einhverja OFURleið til að koma öllum fötunum okkar í sömu íbúð en þar sem við erum báðar OFURkvendi þá reddast þetta all;)

Ég féll í Stærðfræði... gaman, gaman... þannig að ég var í helmingnum af upptökuprófinu áðan og hinn á morgun... jeij!:D Svo er bíllinn minn loksins tilbúinn og ég fæ hann í kvöld eða á morgun!!:D LOKSINS!:D Þá verður sko rúntað... Birgitta, you're on!:D

Ég keypti mér nýja Maroon 5 diskinn á laugardaginn, It Won't Be Soon Before Long... SNILLD! Besti diskur sem ég hef heyrt í laaaangan tíma! Mæli með að allir skelli sér til Adda í pennann og kaupi sér eitt stykki svona!!!:D

Annars er bara sól og blíða hérna... óvenjulegt en satt... það er alltaf rok og rigning í reykjavík... en ætli ég hafi ekki bara komið með góða veðrið með mér;D Það elti mig og SKÆRRAUÐA station Toyota Corollunna sem ég keyrði hingað... hún er bara ooof sko....:D

Svo erum ég og litla barnið mitt (ChouChou) að endurnýja kynni okkar... hann þekkti mig ekki fyrst þegar ég sá hann!!!:cry: En núna er hann farin að vera litla kúrudýrið mitt aftur... litla frekjan...:haha:

Svo verð ég pro kaffmeiker á eftir... er að fara á 3gja tíma námskeið í Kaffibúðinni á eftir... það verður stuð...:D Það er að segja ef ég rata þangað... ótrúlegt hvað ég get villst hérna ... en þá er það bara að nota besta villuráð í heimi! Keyra bara beint áfram!!! (skilur þetta enginn nema Jói... haha).

Svona í lokin vil ég benda á að ég er umboðsaðili fyrir sölu á ástargauknum hans Sigurbjörns, þannig að ef einhver vill kaupa yndislega sætan og góðan ástargauk á góðu verði hafið þá samband:D:D:D Hérna er auglýsingin sem ég setti á F&F.

--------------------------------------------------

Það er sko ekkert shotgun á þennan! Það er bara fyrstur kemur, fyrstur fær!


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.06.2007 16:05:53 / spjelgus

Pjakk...

Jæja þá eru þau tvö eftir... Umhverfisfræði og líffærafræði...

Ég er komin á geðveikt mótþróaskeið gegn lærdómi... hvað þá umhverfisfræði... þetta er án nokkurs efa með tilgangslausustu fögum í heimi... þetta stendur eiginlega bara á jöfnu með lífsleikni sko!! Svo hef ég minna en einn dag til að læra undir líffærafræðina sem er viðbjóðslega erfið... góð próftafla...

Annars er maður svo bara búinn á föstudaginn og þá verður ferðinni heitið til Sauðárkróks til að ná í bílinn minn sem er loksins tilbúinn. Svo ætlum við öll út að borða um kvöldið og taka eitt stykki svona lokadjamm því svo eru allir að fara sitt hvora leið... Svo á laugardaginn keyri ég svo bara til Reykjavíkur:)

Hver sá sem vill læra fyrir mig umhverfisfræði rétt upp hönd...

-------------------------------------------------------

Never know how much I love you,
never know how much I care.
When I put my arms around you,
I get a fever that's so hard to bare,
you give me fever...


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 14:57:10 / spjelgus

FACE Örn Þór...

Ég vil þakka öllum þeim sem hjálpuðu mér yfir þessi erfiðu 3 ár. Helst vil ég þó þakka mömmu og pabba fyrir stuðninginn og ömmu fyrir að vera alltaf til í að drulla yfir hlutina þegar maður þarf á því að halda. Einnig vil ég þakka ákveðnum Jóhanni Gunnarssyni fyrir að kunna frönsku...

ÉG ER BÚIN MEÐ FRÖNSKU!!!:D:D:D:D

Never ever EVER again þarf ég að sitja á aftasta bekk í G13 með ógeðslega rödd glymjandi í hausnum á mér... aldrei aftur þarf ég að sitja í tíma hjá Erni.

Svo er ég líka komin með vinnu í sumar:D Kaffibúðin heitir heppni staðurinn og er staddur í Hamraborg í Kópavogi:) Verst að ég fékk ekki vinnu hjá Domus Medica til að nudda því framan í Sólrúnu... jú og Elfari ... hann hefði víst líka orðið abbó... hahah...

En já það þýðir að loksins er allt að komast í rétt horf... síðasta prófvika að ganga í garð, vinna komin á hreint, bíllinn minn að verða tilbúinn og ég er að flytja af vistinni... forever:D

Yndisleg tilhugsun að þurfa aldrei aftur að böggast yfir ónýtum fötum úr þvottahúsinu eða óætum mat úr mötuneytinu... Hvað þá að mega vera á lífi 2 mánuði skólaársins, já dömur mínar og herrar ég er að tala um próftíðir... Hvað þá hinar yndislegu næturgestareglur? Ónei ónei þeim verður sko ekki saknað...

Svo er bara stærðfræðipróf á mánudaginn... sem þýðir að ég fæ svona 10 min frí frá lærdómi áður en ég þarf að byrja aftur ... JESS:P

Svona að lokum vil ég benda á nýju myndasíðuna mína http://helgahjarta.smugmug.com :D

---------------------------------------------------

Like black butterflies,
I'll find you beautiful no matter what.
You're the one I want...


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.05.2007 21:38:21 / spjelgus

Ca va?

Ég er drukknuð í frönsku... án gríns. Ég er búin að lesa í gegnum allar glósur í fyrstu 4 áföngunum! Ekki spurja mig afhverju, ég veit að ég er bara að fara í próf úr síðasta... mig langað eitthvað bara svo til að rifja upp það sem ég á að vera búin að kunna... *hósthóst*

Annars hætti síminn minn ekki að hringja í dag... voðalga varð ég allt í einu vinsæl! Atvinnutilboð, ofvirk amma, atvinnutilboð og studdalegur afi!! (did I just make that word up?:P) Bryndísi var farið að líða illa yfir að enginn hringdi í hana... þangað til síminn hennar hringdi... og það var rangt númer!!!! hahahahahh!!!:haha:

Annars héngum við bara uppá herbergi í dag að "læra"...  jú og hlæja yfir eftirhermunum hennar Bryndísar á kennurunum okkar.... hahaha.... Þórir er víst bestur!!!:klikk:

En já... atvinnutilboð... ég verð víst að vinna eitthvað smá í bakaríinu þar sem Birgitta mín er að vinna:D Meiraðsegja á sama tíma og hún;) Vá hvað það verður indælt að hafa hana þarna hjá manni til að fíbblast með:*

Svo er spurning hvort ég fái vinnu hjá Domus Medica í rannsóknum;):D:D:D:D

Bon nuit!:* 

------------------------------------------------------------------- 

His magical myth
As strong as what I believe
A tragedy with
More damage than a soul should see...


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2007 01:19:07 / spjelgus

Lífið er yndislegt....

Ég var í bíó... sjóræningjar 4TW!!!:D:D:D

Þetta er án efa besta mynd sem ég hef séð lengi sko! Hún fær bara topp einkunn í kladdan.. nú er bara að bíða eftir að hún komi út á DVD þannig að maður geti horft á hana aftur.. og aftur... og aftur.....:D!

Annars var eðlisfræðipróf í dag... ég er bitur út í eðlisfræði.... og Billó... hann er sveittur...

Núna er ég bara í allt of miklum svefngalsa/high on life feeling að ég á engan veginn eftir að geta sofnað bráðlega... þá er það bara að hlusta á góða tónlist og reyna að syngja ekki of hátt með til að vekja ekki greyið Þórunni hérna við hliðiná mér!!! (ekki hliðiná, hliðiná mér... næsta herbergi...)

Wait! Stop!! I dropped my brain!!!

--------------------------------------------------------

Í ljósu mánaskini vel ég mér stund og segi,
ég myndi klífa hæstu hæðir fyrir þig...


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 17:04:07 / spjelgus

Hvar skal byrja?

Það er komin próftíð. Ég er að fara í eðlisfræðipróf á föstudaginn og er á fullu að læra.

Svo var mér sendur link... á myndband á Youtube.com um ákveðna fjölskyldu í Bandaríkjunum...

Horfið bara á þetta sjálf...

Hluti 1

Hluti 2

Hluti 3

Hluti 4

Hluti 5

Hluti 6


Endilega horfið á þetta allt og segið mér hvað ykkur finnst... ég er í of miklu sjokki til segja eitthvað að viti um þetta...

-------------------------------------------------------------

"If you got hit by a car, do you think your father would be happy?"

"If I got hit by a car, I would go to hell and my father would be happy that I was going to hell"


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2007 21:05:45 / spjelgus

9-unda hjólið?

Er það til?

Ef svo þá var ég það í gær.... það var mjög sérstakt...

Ég fór semsagt í froðupartí í gær... endaði EIN með fjórum pörum... ógisslega gaman:D hahaha .. ógeðslega sniðugt að gera svona daginn fyrir tónleika og svona;) Alltaf er ég jafn gáfuð...

Áðan voru svo vortónleikar kórsins og læti. Ofurmæting að venju, um 20 manns.... :$  Annars gekk allt bara rosalega vel og okkur var alveg marghrósað alveg hreint... eða margsósað eins og ég var næstum búin að skrifa...

Nú held ég að maður leggist bara í prófalestur... engin verkefni eftir fyrir utan að skila vinnubók í efnafræði... og svo bara eðlisfræðipróf á föstudag... SHIT!:P

Það er ógeðsleg harðfiskslykt inní herberginu mínu... vill einhver kaupa harðfisk? Hvað þá með lakkrís? eða klósettpappír?! KOMMON ÞAÐ VANTAR ÖLLUM KLÓSETTPAPPÍR!!!!8|

Annars held ég ég sökkvi mér bara í Jericho og efnafræði núna... yeah, that sounds good...:D

---------------------------------------------------------------------

There was something in the air,
maybe it was magic.
There was something in your voice,
when you used to call my name.
There are moments in my life,
that i can still remember.
There a places in my heart,
that i cannot forget.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 19:38:50 / spjelgus

Spes helgi...

Fólk hættir saman...

Fólk hættir í skóla...

Fólk klessir nýja bílinn sinn...

Það kviknar í húsi fólks...

...

----------------------------------------------------

In a haze, a stormy haze
I’ll be round, I’ll be loving you, always
Always...


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6